Jájá ég hef ekki verið dugleg að blogga hérna ég viðurkenni það alveg....en þar sem það er alveg dauður tími hjá mér einmitt núna þá ætla ég að koma með nokkra punkta frá þessu sumri eins og ég man og nenni að skrifa....svona svo ég reyni að gera eitthvað hérna til tilbreytingar.....
Já ég fekk vinnu í Vín búðinni í sumar og er það alveg djöfull gott starf....maður veit alltaf hvert maður á að fara í party um helgar og sonna
nei segi sona en þetta er mjög góð vinna og frábærir samstarfsmenn þar á ferð....
Road trip 1.....þau voru fá en góð....við fórum t.d. eitt á stykkishólm í brúðkaup Daggar og Svenna því að við vorum nú að þjóna í veislunni....þetta var langt en skemmtilegt ferðalag mikið prumpað og börnin hennar Daggar sem voru í slagtogi með okkur á stykkishólm heldu okkur sko við efnið .... ég get svarið það að siggi vissi meira um örnefni á leiðinni heldur en við og hann er hvað 7 ára eða eitthvað....en allavegana falleg veisla, fallegur bær, falleg brúðhjón og vel heppnuð ferð svo ég segi ekki annað 
Road trip 2.....mér og dönu leiddist einn góðan verðurdag í júlí og ákváðum nú að rúnnta aðeins um fjörðinn....fórum fyrst fram kjálkan eins langt og við komumst og ákváðum þá að fara inn í lýdó....keyrðum og keyrðum og keyrðum og fórum alveg innst inn í lýdó komumst ekki lengra því að það var bara jeppa færi framundan og við hefðum líka lennt inn á einhverjum fjallavegi sem ég man ekki alveg hvað heitir í augnablikinu....allavegana þegar við komumst ekki lengra ákváðum við nú að fara og skoða Merkigil...þann merkastað því að við höfðum nú ekki komið þarna svo að við myndum eftir .... og aldrei farið inn í Austurdal við fórum alveg að brúnni og hlupum þar eins og einhverjir hálvitar um og vorum mikið að spá í að rölta að kirkjunni en hættum við .....gerum það einhverntíman seinna ....en þetta hljómar ekki eins og einhverjar vegalengdir þegar maður skrifar þetta hérna en þessi rúnntur tók okkur alveg um 4 tíma eða svo!
Road trip 3 og 4..... já við fórum til Akureyrar nokkrum sinnum í sumar og var það nú bara djöfull fínnt...allavegana á Bíladögum og Versló....það var gert það sama vanalega drukkið djammað borðað og kúrt hjá ömmu Jo....við erum búnnar að stimpla okkur sem TEAM AMMA JO!!! það erum við .....já um versló var sama rútínan hjá mér og undanfarin ár....Akureyri - Árgarður og ég verð að segja það að mér fannst 1000 sinnum skemmtilegra á ballinu með Geira í Árgarði heldur en á Stuðmönnum í Sjallanum....oj hvað það var leiðinlegt....reyndar var ég soltið drukkin en það er nú allt í lagi....
Road trip 5 .....jú okay þau voru nokkur road trippin.....síðasta var svo Fiskidagurinn Mikli á Dalvík....ég komst ekki fyrr en á Laugardeginum norður en það sögðu allir að það hefði verið helmingi skemmtilegra á föstudagskvöldinu.... mér fannst ekkert spes á laugardagskvöldinu en flugveldasýningin og brekkustemmingin var mjööög góð en um nóttina voru skemmtistaðirnir aðeins of litlir fyrir allan þennan fjölda og rafmagnið fór 3 af í Bakaríinu (barinn á dalvík)
En annars var þetta bara eins Barinn á króknum party heima hjá sæunni.... ég reyndar tók nokkrar ferðir með stefáni á lödunni í einhverjum fíflagangi að drekka bjór og horfa á fjörðinn...
Ég fór svo út til Svíþjóðar í ágúst með Dönu...já anginn minn er fluttur út í bili hún var að fara í skóla í sverge svo að ég fór með henni því að ég var búina að lofa því og maður reynir að vera maður sinna orða er þaggi....en svo var ég að þvæla þarna með Dönu í Gautaborg og Kungålv fór svo yfir til danmerkur og andskotaðist þar í eina og hálfa viku eða svo....týskan þarna í Esbjerg þar sem eg var er vægast sagt soltið á eftir íslandi....en það er allt í lagi ....svo kom ég heim einhverntíman í septenmber byrjun og tók djamm með stúlku kindunum þar fyrir sunnan ....lennti í einu innflutningspartyi og ég og Andrea gerðum allt vitlaust má segja stálum fötu af bar og sonna....læt ekki sjá mig þarna fyrir sunnan á næstunni allavegana....
segi sona
En svo er ég bara heima að vinna ....hugsa um kúnnar blessuðu klaufdýrin og reyna að gera eitthvað gagn... annars vinn ég á föstudögum og laugardögum í ríkinu og ég hvet alla fjarðarbúa að koma og versla við mig einn bjór eða svo það hefur ekki drepið neinn hingað til allavegana....það er að segja ef þeir eru komnir með aldur!!! en það er nú reyndar bara eitt sem kemst að inn í hausnum á mér þessadagana og það er það að laufskálaréttirnar eru NÆSTU helgi og má segja að hópurinn sem kemur með mér ríðandi er vægast sagt orðin skrautlegur
segi ekki meira í bili......